Íslandsmótið byrjað hjá 5. flokki

29. maí 2013

| Garðar

Íslandsmótið byrjað hjá 5. flokki

B liðið eftir leikinn í dag

B liðið eftir leikinn í dag

Sameiginlegt lið Ægis/Hamars í 5. flokki hóf í dag leik á Íslandsmótinu þegar Njarðvík kom í heimsókn með A, B og C lið sín.  D liðið átti að leika gegn Þrótti en fresta þurfti þeim leik.

Gestirnir frá Njarðvík reyndust full sterkir fyrir okkar menn og töpuðu öll liðin sínum leikjum.  En það er nóg eftir af mótinu og miðað við árangurinn á Faxaflóamótinu ætti liðið að vera í góðum málum.