Sameiginlegt lið Selfoss, Ægis og Árborgar í 2. flokki karla lék í gærkvöldi gegn Leikni/KB á Leiknisvelli. Leiknum lauk með 3:3 jafntefli en okkar menn komust í 0:2 og 1:3 en fengu á sig tvö mörk undir lok leiksins. Eftir þrjá leiki er liðið með 1 stig og í 7. sæti B riðils.
Næsti leikur liðsins er gegn KA á Akureyri sunnudaginn 2. júní.
