Meistaraflokkur mætti ÍR á Hertz vellinum í kvöld. Heimamenn voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og komust í 1:0 á 16. mín. ÍRingar áttu nokkur góð færi í viðbót en Hugi stóð vaktina vel í markinu. Ægismenn vantaði neistann í fyrri hálfleik og náðu lítið að ógna marki ÍR.
Í síðari hálfleik var annar bragur á leik Ægis og meira jafnræði með liðunum. Það voru samt heimamenn sem bættu við marki á 54. mín. og staðan orðin 2:0. Á 70. mín. fengu Ægismenn víti sem Matejic skoraði úr. Það sem eftir lifði leiks voru okkar menn sterkari og fengu nokkur færi til að bæta við marki en inn vildi boltinn ekki. Niðurstaðan því 2:1 tap.
Næsti leikur meistaraflokks er stórleikur gegn Hamri á Hafnardögum en hann fram á Þorlákshafnarvelli laugardaginn 1. júní kl. 16:00.