A og B lið 5. flokks karla í sameiginlegu liði Ægis/Hamars lék í gær gegn Reyni/Víði og fóru leikirnir fram í Sandgerði.
A liðið hóf leik og vann góðan 1:3 sigur eftir að staðan var 1:1 í hálfleik. B liðið vann einnig góðan sigur í miklum markaleik en hann endaði 5:8.
Þetta voru síðustu leikir 5. flokks í Faxaflóamótinu en Íslandsmótið hefst í lok maí.
