Fjölmenni á Lýsismót

9. maí 2013

| Garðar

Fjölmenni á Lýsismót

7. flokkur kvenna fagnar eftir góðan leik

7. flokkur kvenna fagnar eftir góðan leik

Það var mikið fjör á grasvöllum Þorlákshafnar í dag þegar Lýsismótið fór fram.  Rúmlega 300 keppendur í 6. og 7. flokki karla og kvenna fóru mikinn á knattspyrnuvellinum og sáust oft glæsileg tilþrif.  Hátt í 60 lið frá 9 félögum mættu til leiks.

Eftir knattspyrnuleiki og verðlaunaafhendingu fengu allir leikmenn pylsur og ís en fjörinu lauk síðan með sundlaugarpartýi.

Almenn ánægja var meðal mótsgesta og því ljóst að mótið hefur alla burði til að vaxa og dafna. Ekki skemmdi veðrið fyrir en það var með besta móti í dag.

Knattspyrnufélagið þakkar öllum er komu að framkvæmd mótsins kærlega fyrir aðstoðina.