Lýsismótið á fimmtudag

6. maí 2013

| Garðar

Lýsismótið á fimmtudag

Í bæjarlífLýsismót Ægis verður haldið í Þorlákshöfn fimmtudaginn 9. maí.  Ljóst er að mótið verður talsvert stærra en í fyrra og von er á rúmlega 300 keppendum.

Mótið hefst kl. 10:00 með leikjum 6. flokks karla en þeir verða að til 13:00.  Klukkan 13:00 taka 6. flokkur kvenna, 7. flokkur kvenna og 7. flokkur karla við og spila til 16:00.

Eftir leiki tekur við grill, ís, verðlaunaafhending og sundlaugarpartý en á sundlaugarsvæðinu verður plötusnúður sem heldur uppi fjörinu. Það er því mikilvægt að allir muni eftir sundfötunum.

Leikjaniðurröðun er klár og hefur verið send á þjálfara. Hægt er að skoða hana á tengli hér á síðunni.

Ægir bíður alla velkomna á mótið og það er okkar ósk að allir skemmti sér konunglega.