Knattspyrnunámskeið fyrir stelpur

7. apr 2013

| Garðar

Knattspyrnunámskeið fyrir stelpur

Ægir mun halda 6 vikna námskeið, sérsniðið fyrir stelpur á aldrinum 11-16 ára. Lögð verður áhersla á knattspyrnu þar sem æfingar, fræðsla, skemmtun og fjör verða í fyrirrúmi.

Æft verður tvisvar sinnum í viku, í 1 klst. í senn, mánudaga kl. 17:00 á gervigrasinu og miðvikudaga kl. 18:00 í íþróttasal. Námskeiðið stendur yfir frá 10. apríl til 20. maí.

Markmiðið er að auka áhuga stúlkna á knattspyrnu í samræmi við áherslu KSÍ, auka færni og fræðast, og ekki síst að hafa gaman. M.a. verður farið í heimsókn í Hamarshöllina að hitta stelpurnar í Hveragerði og Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari íslenska kvennalandsliðsins, mun kíkja í heimsókn til okkar.

Námskeiðið kostar kr. 5.000  og leiðbeinandi verður Guðlaug Arna Hannesdóttir, sem æft hefur knattspyrnu um langt skeið með Ægi og Selfoss.

Skráning fer fram með því að senda tölvupóst á Garðar (gardar@olfus.is) eða Júlíus (julius.s.kristjansson@gmail.com) fyrir 9. apríl. Við skráningu þarf að gefa upplýsingar um nafn og fæðingarár þátttak

5. flokkur Ægis sumarið 2007

5. flokkur Ægis sumarið 2007

enda og nafn og kennitölu greiðanda.