Meistaraflokkur karla lék gegn KV í Lengjubikarnum í gær. Ánægjulegt var að sjá hversu margir uppaldir Ægisstrákar voru í leikmannahóp liðsins en meðal annars má nefna að Pálmi Þór Ásbergsson er komin aftur í klúbbinn á láni frá Selfossi og hinn 15 ára Axel Örn Sæmundsson stóð allan tímann í markinu.
Ekkert útlit var fyrir slæm úrslit framan af leik þó KV væru heldur sterkari aðilinn. Ægir komst betur inní leikinn þegar leið að hálfleik og útlitið því ekki slæmt.
Á 30 mín. kafla í síðari hálfleik skoruðu KV 6 mörk og úrslit leiksins því stórt tap 6:0. En nú er bara að spýta í lófana og læra af því sem miður fór.
Næsti leikur liðsins í Lengjubikarnum er gegn ÍR og fer hann fram föstudaginn 5. apríl kl. 20:00 á Hertz-vellinum.
