Tap hjá meistaraflokki gegn Reyni S.

9. mar 2013

| Garðar

Tap hjá meistaraflokki gegn Reyni S.

Meistaraflokkur karla lék í dag fyrsta leik sinn í Lengjubikarnum þetta tímabilið.  Mótherjinn var Reynir Sandgerði og fór leikurinn fram í Reykjaneshöll.

Leikurinn fór ágætlega af stað því Guðni Þór skoraði fyrsta mark leiksins á 18. mín. og staðan 0:1 fyrir Ægi.  En Reynismenn skoruðu mörk á 24. 25. og 37. mín. og staðan í hálfleik ekki góð, 3:1.

Í síðari hálfleik bættu heimamenn við marki á 78. mín og staðan því orðin ansi erfið.  Snorri bætti aðeins stöðu Ægismanna með marki á 81. mín. en leiknum lauk með sigri Reynis 4:2.

Næsti leikur liðsins í Lengjubikarnum verður gegn KV og fer hann fram á KR-velli laugardaginn 23. mars og hefst kl. 14:00.016