Sigurpáll Sören Ingólfsson mun verja mark Ægis í sumar eftir að samkomulag náðist við KR um að hann verði áfram á láni hjá félaginu.
Sigurpáll kom til Ægis upp úr miðjum febrúar og hefur síðan tekið þátt í leikjum liðsins bæði í Lengjubikar og Mjólkurbikar. Hann hefur staðið sig vel á undirbúningstímabilinu og sýnt að hann er öflug viðbót við hópinn fyrir komandi verkefni í Lengjudeildinni.
Sigurpáll, sem oft er kallaður Spalli, er 23 ára gamall og uppalinn KR-ingur. Hann á einnig að baki 22 leiki með KV í 2. deildinni árið 2023, auk þess sem hann hefur leikið 14 leiki í meistaraflokki KR. Þá var hann varamarkvörður liðsins tímabilin 2024 og 2025.
Hann varð fyrir því óhappi síðasta sumar að ökklabrotna á æfingu, en hefur unnið sig vel til baka og frammistaða hans að undanförnu gefur góð fyrirheit fyrir sumarið.
Velkominn í Ægi, Spalli. 💛🖤
