Sigurður Pétur Stefánsson hefur gengið til liðs við Ægi frá Kormáki/Hvöt og skrifað undir tveggja ára samning við félagið.
Sigurður er 22 ára gamall miðjumaður frá Blönduósi og hefur leikið bæði í yngri flokkum og meistaraflokki með Kormáki/Hvöt og Tindastól. Hann er öflugur og vinnusamur leikmaður sem lætur finna fyrir sér á miðjunni og gefst aldrei upp í baráttunni.
Hann hefur verið að æfa með Ægi undanfarnar vikur og hefur nú formlega gengið til liðs við hópinn. Með komu hans styrkist leikmannahópur Ægis enn frekar fyrir komandi verkefni.
Við bjóðum Sigurð Pétur hjartanlega velkominn í Ægi 💛🖤
