Ný aðalstjórn kosin hjá Ægi

17. mar 2026

| sös

Ný aðalstjórn kosin hjá Ægi

Á aðalfundi Ægis sem haldinn var mánudaginn 16. mars var kosin ný aðalstjórn félagsins. Nokkrar breytingar urðu á skipan stjórnarinnar.

Fyrirkomulagið hefur verið þannig að í aðalstjórn sitja formaður félagsins, tveir fulltrúar úr Barna- og unglingaráði og tveir fulltrúar úr meistaraflokksráði.

Kolbrún Rakel Helgadóttir lét af störfum sem formaður Barna- og unglingaráðs eftir fjögurra ára starf. Í hennar stað kemur Kristín Magnúsdóttir sem nýr formaður ráðsins. Þá hættir Helga Gylfadóttir í stjórn og Magnús Elfar Thorlacius tekur sæti hennar.

Ný aðalstjórn félagsins er því skipuð eftirfarandi:

  • Guðbjartur Örn Einarsson, formaður
  • Kristín Magnúsdóttir, fulltrúi Barna- og unglingaráðs
  • Lárus Arnar Guðmundsson, fulltrúi meistaraflokksráðs
  • Jón Reynir Sveinsson, fulltrúi meistaraflokksráðs
  • Magnús Elfar Thorlacius, fulltrúi Barna- og unglingaráðs

Við þetta tilefni var Kolbrúni Rakel þakkað fyrir ómetanlegt framlag sem formaður yngri flokka félagsins á undanförnum árum. Hún hefur lagt góðan grunn að starfinu og félagið óskar henni alls hins besta í komandi verkefnum.

Á fundinum var einnig kynnt ný heimasíða félagsins sem nú er formlega komin í loftið. Með henni hyggst félagið bæta upplýsingagjöf til iðkenda, foreldra og stuðningsfólks og styrkja enn frekar tengslin við samfélagið.