Baptiste Gateau hefur framlengt samning sinn við Knattspyrnufélagið Ægir sem eru afar góð tíðindi fyrir félagið.
Gateau kom til Ægis fyrir síðasta tímabil og festi sig fljótt í sessi sem einn af lykilmönnum liðsins árið 2025. Hann er 25 ára gamall miðvörður frá Rennes í Frakklandi og var áður í háskólabolta í Bandaríkjunum þar sem hann lék í fjögur ár.
Baptiste er stór og sterkur varnarmaður með góðan hraða sem hentar vel í miðvarðarstöðunni. Hann lék alls 18 leiki með Ægi á síðasta tímabili og skoraði tvö mörk. Á seinni hluta tímabilsins varð hann fyrir ökklameiðslum og missti af síðustu sex leikjunum.
Meiðslin eru nú að baki og Gateau er kominn á fulla ferð á ný. Hann er mættur í æfingahópinn og tekur fullan þátt í undirbúningi liðsins fyrir tímabilið í Lengjudeild karla 2026.
Við bjóðum hann hjartanlega velkominn til okkar að nýju og hlökkum til að sjá hann á vellinum í sumar.
