Meistaraflokkur karla lék í kvöld æfingaleik gegn Sindra og fór hann fram í Kórnum. Sindramenn verða nýliðar í 2. deild líkt og Ægir komandi sumar og viðureignin því forvitnileg.
Strákarnir áttu góðan leik í kvöld og sigruðu 2:0. Bæði mörkin komu í fyrri hálfleik sem var sérlega vel spilaður. Alli þjálfari notaði 19 leikmenn í leiknum sem allir fengu að spreyta í amk. 20 mín.
