Fjórir nýjir leikmenn gengu nú í vikunni til liðs við meistaraflokk Ægis.
Snorri Sigurðarson er fæddur 1989. Hann hefur spilað með Árborg frá 2008 en þar á undan spilaði hann með Selfoss. Spilað 60 leiki fyrir Árborg og skorað 4 mörk. Hann getur spilað í vörn og á miðju.
Tómas Kjartansson er fæddur 1990 og hefur spilað á sínum ferli með ÍBV,
Selfoss, Framherjar, Árborg og nú komin yfir í Ægi. Hann getur spilað í vörn og á miðju.
Fannar Davíðsson sem fæddur er 1994 er uppalinn Ægismaður. Hann því komin aftur til félagsins eftir að hafa spilað með Selfoss og Hamri undanfarin tvö ár. Fannar er sterkur varnarmaður.
Að lokum skal nefna Sigþór Snorrason en hann kemur frá Njarðvík. Hann er upphaflega frá Ísafirði og hefur spilað með BÍ/Bolungarvík lengsta hluta ferilsins. Sigþór er öflugur miðjumaður.
Félagið bindum góðar vonir við strákana og á Alli þjálfari vona á að þeir styrki og bæti hópinn.
