Stór hópur á samæfingu 5. flokks í Hamarshöllinni

17. des 2012

| Garðar

Stór hópur á samæfingu 5. flokks í Hamarshöllinni

5. flokkur hélt í Hamarshöllina á föstudaginn og tók samæfingu með 5. flokki Hamars.  Félögin eru í samstarfi með 5. flokk og tilvalið að taka æfingu saman í nýju glæsilegu Hamarshöllinni.

Það var stór hópur sem æfði saman, 26 strákar og því ljóst að félögin fara langt með að senda 4 lið á Íslandsmótið næsta sumar.