Meistaraflokkur karla lék æfingaleik gegn Njarðvík á fimmtudagskvöldið. Leiknum lauk með 4:3 sigri heimamanna en spilað var í Reykjaneshöll.
Sem fyrr áttu Ægismenn góða spretti en fengu á sig mörk af ódýrari gerðinni. Þess má geta að 5 strákar úr 3. flokk léku með liðinu, þeir Arnar Logi, Jón Jökull, Eyþór Dagur, Axel og Pétur. Strákarnir stóðu sig allir með prýði.