Aðalfundur Ægis var haldinn sunnudaginn 11. nóvember síðastliðinn. Eins og oft áður var mæting utan stjórnar og starfsmanna ekki góð og er það miður.
Dagskrá fundarins var með hefðbundnu sniði. Skýrsla yfirþjálfara var flutt þar sem helstu atriði síðastliðins tímabils komu fram. Reikningar voru yfirfarnir og kosið var í stjórn.
Aðeins ein breyting var á stjórn. Guðrún Sigurðardóttir lét af störfum og þakkar félagið henni vel unnin störf. Í hennar stað koma Sveinn Jónsson aftur inn í stjórnina. Hana skipa því Guðbjartur Örn, Guðbjörg Heimisdóttir, Þór Emilsson, Júlíus Kristjánsson og Sveinn Jónsson.
Samþykkt var að koma á fót sérstakri fjáröflunarnefnd sem sjá á um fjáraflanir af ýmsum toga. Með þessu minnkar talsvert það álag sem er á stjórn við öflun rekstrartekna. Þar sem félagið á nú lið í 2. deild meistaraflokks er alveg ljóst að rekstur liðsins verður kostanaðarsamari og því er nefnd sem þessi nauðsynleg. Nefndin hefur verið skipuð og í henni eru Dagbjört Hannesdóttir, Þráinn Sigurðsson, Sigríður Hulda og Gestur Þór Kristjánsson. Hún hefur þegar hafið störf og ýmis verkefni komin af stað.