Meistaraflokkur karla lék sinn annan æfingaleik þetta tímabilið síðastliðinn miðvikudag. Leikið var gegn HK í Kórnum.
Hópurinn var blanda af fastamönnum frá síðasta tímabili, ferskir strákar úr 2. og 3. flokk auk nokkura nýrra leikmanna sem léku til reynslu.
Það er skemmst frá að segja að okkar menn unnu góðan 4-1 sigur og voru sterkar aðilinn í leiknum, þá sérstaklega fyrstu 45. mín. HK sköpuðu sér fá færi í leiknum en þeirra eina mark koma í skoti utan af velli.
Það var sérstaklega gaman að sjá ungu strákana standa sig vel en Arnar Logi náði að skora og Axel átti tvær góðar vörslur.
Næsti leikur liðsins verður laugardaginn 1. des. gegn ÍR á ÍR-velli og hefst kl. 10:00.