Meistaraflokkur karla lék á laugardaginn sinn fyrsta æfingaleik á þessu tímabili. Mótherjinn var Grótta og lauk leiknum með sigri þeirra 2:0. Alfreð þjálfari var að prófa marga nýja leikmenn og einnig fengu okkar yngri strákar að spila talsvert. Í heildina var Alli sáttur við leikinn.
Liðið leikur í kvöld gegn HK og hefst leikurinn kl. 18:30 í Kórnum.