Eftir að hafa tryggt sér sæti í 2. deild næsta tímabil var gert hlé á æfingum meistaraflokks í nokkrar vikur. Nú um mánaðarmótinu hófust æfingar að nýju. Alli þjálfari hóf tímabilið á að kynna æfingaáætlun fram að keppnistímabili í vor í fundaraðstöðu íþróttamiðstöðvarinnar. Rúmlega 20 leikmenn mættu á fundinn og voru þar bæði gömul og ný andlit.
Meistaraflokkurinn hefur æfingar að nýju
4. nóv 2012
| Garðar