Stjórnir og þjálfarar Ægis, Hamars og Selfoss hafa fundað undanfarið til að ganga frá samstarfsmálum félaganna. Viðræður hafa gengið vel liggur fyrir að félögin þrjú munu vera í samstarfi með 2. 3. og 4. flokk karla og kvenna komandi tímabil. Flokkarnir munu æfa hjá sínu félagi og síðan hittast á samæfingum eins og kostur er, nánari útfærsla á þeim verður í höndum þjálfara.
Fyrsta verkefni þessa samstarfs verður Faxaflóamótin sem eru að hefjast. Fyrstu leikir á því eru hjá 4. flokk karla en þeir eiga leiki núna á sunnudag sem verða leiknir á gervigrasinu á Selfossi.
Áframhald verður á samstarfi Ægis og Hamars í 5. og 6. flokk eins og undanfarin ár en það hefur gengið mjög vel. Þegar Hamarshöllin verður komin í notkun munu hefjast reglulegar samæfingar hjá þeim flokkum.
