Alfreð skrifar undir nýjan samning

8. okt 2012

| Garðar

Alfreð skrifar undir nýjan samning

Alli skrifaði undir nýjan tveggja ára samning við félagið í dag.  Þetta eru  ánægjulegar fréttir enda náið liðið frábærum árangri í sumar og mun spila í 2. deild næsta sumar.  Einnig mun hann sjá um þjálfun 3. flokks karla og kvenna.  Á meðfylgjandi mynd má sjá Össa og Alla takast í hendur eftir undirritun samningsins.