Sigur á Magna í rokinu og sæti í 2. deild staðreynd

12. sep 2012

| Garðar

Sigur á Magna í rokinu og sæti í 2. deild staðreynd

Ægismenn tóku á móti Magna frá Grenivík í síðari leik liðanna í undanúrslitum 3. deildar á Þorlákshafnarvelli í dag.  Ekki viðraði vel til knattspyrnuiðkunnar í dag, hvöss suðaustanátt og rigning.

Okkar menn byrjuðu á móti vindi og þurftu að verjast af krafti enda fór boltinn oft meira til baka en áfram.  Þó náðum við að skapa okkur nokkur færi en það voru gestirnir sem skoruðu eina mark hálfleiksins á 30. mín.

Í síðari hálfleik vorum við með vindinn í bakið og stjórnuðum leiknum sem eðlilegt er.  Við uppskárum jöfnunarmark á 55. mín. þegar Milan skorðaði eftir góða sókn.  En eitthvað voru menn sofandi eftir markið því Magnamenn komust aftur yfir mínútu síðar eftir klaufagang í vörn Ægis.  Á 67. mín. náði síðan Matti að jafnaleikinn aftur með góðu baráttumarki og staðan því vænleg.  Gestirnir náðu lítið að ógna marki okkar eftir þetta  og það var síðan Magnús Helgi sem innsiglaði sigur Ægis á 90. mín. en fyrir það höfðum við fengið nokkra góða sénsa.

Frábær sigur okkar manna tryggði sæti í 2. deild að ári sem er svo sannarlega fagnaðar efni.  En þessu tímabili er ekki lokið því á laugardaginn kemur er úrslitaleikur við Sindra um sigur í deildinni.