Meistaraflokkur karla sótti Magna heim á Grenivík í dag. Þetta var fyrri leikur liðana í undanúrslitum 3. deildar.
Heimamenn hófu leikinn af krafti, sóttu á mörgum mönnum og komu varnarmönnum Ægis ansi oft í vandræði. Þeir uppskáru mark á 5. mín. og útlitið ekki bjart. Milan, sem átti frábæran leik, jafnaði leikinn á 13. mín. með góðu langskoti. Er leið á fyrri hálfleik unnu Ægismenn sig betur inní leikinn, héldu boltanum betur og stöðvuðu sóknir Magna
.
Í síðari hálfleik voru okkar menn heldur sterkari aðilinn og uppskáru mark frá Matta á 64. mín. Magnús Helgi gulltryggði síðan sigur Ægis með marki í blálokin.
Þessi sigur er svo sannarlega gott veganesti fyrir síðari leikinn sem fer fram á Þorlákshafnarvelli næstkomandi miðvikudag kl. 17:15. Nú fjölmennum við öll á völlinn og styðjum strákana til sigurs og sætis í 2. deild.