Meistaraflokkur mætir Magna á Grenivík í dag

8. sep 2012

| Garðar

Meistaraflokkur mætir Magna á Grenivík í dag

Meistaraflokkur leikur fyrri leik sinn í undanúrslitum 3. deildar gegn Magna á Grenivík í dag.  Leikurinn hefst kl. 14:00 og má segja að liðið hafi sjaldan spilað mikilvægari leik.  Það er nauðsynlegt að ná góðum úrslitum á útivelli en síðari leikurinn fer fram á Þorlákshafnarvelli næstkomandi miðvikudag.

Það er skarð fyrir skildi í liði Ægis en Ivan, Ingimar og Ingi Rafn eru allir í leikbanni en það kemur maður í manns stað og í hópinn koma Arnar Þór, Arnar Logi og að sjálfsögðu Alli þjálfari.

Áfram Ægir