1:1 jafntefli á Seyðisfirði í dramatískum leik og Ægir í undanúrsli

4. sep 2012

| Garðar

1:1 jafntefli á Seyðisfirði í dramatískum leik og Ægir í undanúrsli

Leik Ægis og Hugins á Seyðisfirði var rétt í þessu að ljúka en þetta var síðari leikur liðanna í 8 liða úrslitum 3. deildar.  Þessi úrslit þýða að Ægir er komið í undanúrslit en okkar menn sigruðu rimmuna við Hugin samanlagt 2:1.

Ægismenn komust í 1:0 þegar um 15 mín. voru búnar af leiknum,  það var Matti sem skoraði markið og þannig var staðan í hálfleik.

Fljótlega í síðari hálfleik komust okkar menn í virkilega þægilega stöðu þegar leikmaður Hugins var rekin af velli með tvö gul spjöld.  En Adam var ekki lengi í paradís því Ingi Rafn fékk skömmu síðar að líta sitt annað gula spjald og því jafnt í liðum, í kjölfarið jöfnuðu síðan heimamenn metin.  En Ægisstrákarnir stóðust álagið og fengu ekki á sig fleiri mörk.  Niðurstaðan því 1:1 jafntefli.

Sem fyrr segir þá er liðið komið í undanúrslit og mótherjinn verður Magni frá Grenivík en með því liði leikur einmitt Ægismaðurinn Elfar Þór Bragason.  Fyrri leikurinn fer fram á Grenivík næstkomandi laugardag en við eigum heimaleik miðvikudaginn 12. september.