Mikilvægur 1-0 sigur meistaraflokks

1. sep 2012

| Garðar

Mikilvægur 1-0 sigur meistaraflokks

Meistaraflokkur karla tók í dag á móti Huginn frá Seyðisfirði.  Þetta var fyrri leikurinn í 8 liða úrslitum 3. deildar og mikilvægt að ná góðum úrslitum á heimavelli.

Leikurinn var jafn framan af, mikil barátta og bæði lið við það að skapa sér færi.  Á 35. mín. slapp Predrag í gegn og var tekin niður af markmanni gestanna, víti dæmt og rautt spjald á markmanninn.  Milan skoraði örugglega úr vítinu.

Einum fleiri stjórnuðu Ægismenn spili leiksins en náðu ekki að skapa sér teljandi færi utan einu sinni þegar Eyþór Guðna fékk fínt færi í miðjum teyg en boltinn fór yfir.  Niðurstaðan því 1:0 sigur.

Síðari leikurinn fer fram á þriðjudaginn á Seyðirfirði og hefst kl. 17:30.