Meistaraflokkur hefur leik í 8 liða úrslitum á morgun

31. ágú 2012

| Garðar

Meistaraflokkur hefur leik í 8 liða úrslitum á morgun

Lið Hugins frá Seyðisfirði mætir Ægi á Þorlákshafnarvelli  á morgun í 8 liða úrslitum 3. deildar.  Þetta er fyrri leikur liðanna en hann hefst kl. 13:00.  Aðgangseyrir er 1000 kr. fyrir 16 ára og eldri.  Það er mikilvægt að ná góðum úrslitum fyrir seinni leikinn sem fer fram á Seyðisfirði næstkomandi þriðjudag.  Mætum því öll á völlinn og styðjum við bakið á strákunum.

Allir á völlinn – Áfram Ægir