Ólík hlutskipti A og B liða 3. flokks gegn Aftureldingu

26. ágú 2012

| Garðar

Ólík hlutskipti A og B liða 3. flokks gegn Aftureldingu

A og B lið 3. flokks tóku á móti Aftureldingu í gær, laugardag á Þorlákshafnarvelli.  A liðið hóf leik en þeir fundu aldrei taktinn og máttu þola 0:3 tap þrátt fyrir að vera einum manni fleiri stóran hluta síðari hálfleiks.  B liðið átti talsvert betri dag og vann sanngjarnan 3:0 sigur.