5. flokkur tók á móti Hrunamönnum á Þorlákshafnarvelli í dag. Gestirnir mættu með 3 lið og settum við saman C lið á móti þeim. C liðið stóð sig svo sannarlega vel og vann sinn leik örugglega 3:0. B liðið spilaði hörkuleik sem endaði með 3:3 jafntefli en liðið sýndi mikla baráttu í dag og flottan fótbolta. A liðið vann síðan 2:0 sigur og spilaði trúlega sinn besta leik í sumar. 5. flokkur endaði því sumarið með stæl.
Góður dagur hjá 5. flokki
23. ágú 2012
| Garðar