Mikilvæg 3 stig í hús gegn Stál-úlfi

17. ágú 2012

| Garðar

Mikilvæg 3 stig í hús gegn Stál-úlfi

Meistaraflokkur karla lék í kvöld gegn Stál-úlf og fór leikurinn fram í Kórnum í Kópavogi.  Fyrir leikinn voru okkar menn í öðru sæti og í harðri toppbaráttu við Sindra og Berserki, Stál-úlfur var hins vegar í næst neðsta sæti með 8 stig.

Þrátt fyrir mikinn mun á stöðu liðanna reyndist verkefni kvöldsins ekki auðvelt fyrir strákana okkar.  Heimamenn börðust vel en Ægir náði ekki að finna rétta taktinn.  Eyþór Guðnason var síðan bjargvættur liðsins þegar hann skoraði gott skallamark eftir horn þegar lítið var eftir af leiknum.  Mjög mikilvægur sigur og góð 3 stig í hús.

Sem stendur eru Ægismenn í toppsætinu með 28 stig.  Á morgun leika síðan Sindri (með 26 stig) og Berserkir (með 25 stig) á Hornafirði.  Gaman verður að fylgjast með úrslitum í þeim leik en jafntefli kæmi sér vel yfir okkur.

Síðasti leikur Ægis í riðlakeppninni verður laugardaginn 25. ágúst og er það sannkallaður grannaslagur gegn Árborg.