Góður sigur meistaraflokks í gær – allt í hnút á toppnum

28. júl 2012

| Garðar

Góður sigur meistaraflokks í gær – allt í hnút á toppnum

Meistaraflokkur karla lék gegn Létti á Hertz vellinum í gærkvöldi.  Okkar menn unnu góðan 1:0 sigur en það var Ivan sem skoraði eina mark leiksins í fyrri hálfleik.  Ægir er sem stendur í þriðja sæti með 22 stig eins og Berserkir, og bæði lið með 16 mörk í plús.  Sindri situr í toppsætinu með 23 stig.

Næsti leikur meistaraflokks er gegn Ísbirninum 10. ágúst á Þorlákshafnarvelli.