Vel heppnuðum knattspyrnuskóla lokið

23. júl 2012

| Garðar

Vel heppnuðum knattspyrnuskóla lokið

Knattspyrnuskóli Ægis hefur verið starfræktur í allt sumar.  Þar æfa krakkar í 6. og 7. flokk fótbolta af miklum kraftir.  Síðastliðinn fimmtudag var lokadagur skólans en rúmlega 30 börn hafa æft í honum í sumar.  Á lokadeginum var grillað og spilaður fótbolti.  Nú tekur við sumarfrí en æfingar hefjast aftur eftir verslunarmannahelgi.