Það voru fínar aðstæður til að leika knattspyrnu í kvöld þegar Berserkir komu í heimsókn á Þorlákshafnarvöll. Fyrir leikinn voru gestirnir á toppnum með 19 stig en okkar menn með 16.
Ægismenn voru fljótir að skora þegar Matti skallaði boltann í netið. Jafnræði var með liðunum eftir það. Berserkir voru heldur meira með boltann en eftir snarpa sókn Ægis bætti Predrag við öðru marki og staðan í hálfleik 2:0.
Í síðari hálfleik skiptust liðin á að sækja en gestirnir náðu þó aldrei að ógna marki Ægis og sóknir heimamanna voru miklu beittari og markvissari. Uppskeran var eftir því og eftir flotta skyndisókn bætti Arilíus við 3. marki Ægis. Í uppbótartíma komu síðan mörk frá Inga Rafni og Magnúsi og niðurstaðan því 5:0 sigur Ægis.
Leikur Ægis var virkilega góður í kvöld, liðið mjög þétt til baka og sóknirnar beittar. Liðið er sem stendur á toppi riðilsins með 19 stig. Næsti leikur liðsins er gegn Létti fimmtudaginn 26. júlí.