Sameiginlegt lið Ægis/Hamars í 5. flokki tók í síðustu viku þátt í hinu árlega N1-mótinu sem haldið er á Akureyri. Það er stærsta mót sem haldið er fyrir 5. flokk karla og eru keppendur um 1.200 hvert ár. Veðrið lék við keppendur þetta árið og voru allir fyrir vikið hressir og kátir. Okkar krakkar stóðu sig með mikilli prýði innan vallar sem utan og náðu fínum árangri en niðurstaðan var 8. og 15. sæti (af 26 liðum hjá báðum).
Fjör á N1-mótinu
10. júl 2012
| Garðar