Töpuð stig á Þorlákshafnarvelli

5. júl 2012

| Garðar

Töpuð stig á Þorlákshafnarvelli

Meistaraflokkur karla lék í gærkvöldi gegn KFS á Þorlákshafnarvelli.  Fyrir leikinn voru liðin jöfn með 13 stig í 3. – 4. sæti.  Jafnræði var með liðunum framan af leik en á 30. mín. fékk Matti beint rautt eftir samstuð við markvörð KFS, ansi harður dómur.  Fljótlega eftir það gegnu gestirnir á lagið og komust yfir 0:1.

Í síðari hálfleik áttu Ægismenn fínan leik og voru sterkara liðið þrátt fyrir að vera einum færri.  En þrátt fyrir fjölda fínna færa náðu okkar menn ekki að setja mark og 0:1 tap því staðreynd.

Næsti leikur liðsins er laugardaginn 14. júlí gegn Sindra á Hornafirði.