A og B lið Ægis/Hamars í 6. flokks karla léku í E riðli Pollamóts KSÍ í Þorlákshöfn í dag.
A liðið spilaði tvo leiki, tapaði 1:2 í jöfnum leik gegn Val og gerðu síðan jafntefli 2:2 við Stjörnuna en báðir mótherjarnir voru mjög sterkir. A liðið endaði því í öðru sæti með betri markatölu en Stjarnan, Valur sigraði riðilinn og fer í úrslit.
B liðið byrjaði á tveimur sigrum, 4:1 gegn Víði og 2:1 gegn Val. Síðan léku þeir gegn lang sterkasta liði riðilsins Stjörnunni en sá leikur tapaðist 0:9 en það var minnsti sigur Stjörnunnar. B liðið endaði því í öðru sæti með 6 stig en Stjarnan vann riðilinn og fer í úrslit.