Kempurnar í Oldboys fengu KR í heimsókn á Þorlákshafnarvöll í gærkvöldi. Þetta var gríðarlega jafn og spennandi leikur þar sem Ægismenn spiluðu þéttan varnarleik og beittu öflugum skyndisóknum. Leiknum lauk með sigri KR 2:3 en þeir skorðuðu sigurmarkið 1 mín. fyrir leikslok. Það voru Ármann og Steini Skúla sem skoruðu mörk Ægis.
Hér fylgja með nokkrar myndir frá leiknum.