Sumardagskrá hefst á morgun

10. jún 2012

| umsjon

Sumardagskrá hefst á morgun

Á morgun byrjar formlega sumardagskrá hjá Ægi.  Morgunæfingar hefjast hjá 5. flokk og 6. og 7. flokkur byrja í knattspyrnuskólanum sem er á morgnana frá 10:00 – 12:00.  Einnig byrjar Gyða Steina með útiæfingar fyrir 8. flokk en þær verða á mánudögum og miðvikudögum frá 16:00 – 17:00.  Síðan byrjar hið sívinsæla leikjanámskeið Ægis en það er frá 13:00 – 15:00 mánudaga til fimmtudaga, umsjón með námskeiðinu hefur Hófí.  Æfingar 4. flokks karla og kvenna og 3. flokks karla eru síðan seinni partinn.