3. flokkur karla úr leik í bikarnum

8. jún 2012

| umsjon

3. flokkur karla úr leik í bikarnum

Lið Ægir/Selfoss í 3. flokk karla lék í gærkvöldi gegn Fjölni í bikarkeppninni.  Leikurinn var jafn og spennandi en lengi vel var staðan 1:1.  Í þeirri stöðu fengu okkar strákar víti sem þeir náðu ekki að nýta og eitt dauðafæri sem hefði gert út um leikinn.  En það var Fjölnir sem komst yfir 1:2 og í þeirri stöðu bættu heimamenn í sóknarleikinn og fengu á sig mark í blálokin.  Leiknum lauk því með 1:3 sigri Fjölnis.