Góður sigur hjá meistaraflokk

2. jún 2012

| umsjon

Góður sigur hjá meistaraflokk

Meistaraflokkur karla lék í gær gegn Berserkjum á útivelli.  Fyrir leikinn voru Berserkir í efsta sæti riðilsins og einnig var þeim spáð sigir í honum.

Nóg var skorða í leiknum en aðeins tveir menn sem sáu um að skora þau.  Heimamenn skoruðu fyrsta markið á 13. mín en þar var að verki Arnar Þórarinsson.  En þá var komið að Inga Rafni.  Hann jafnaði leikinn á 16. mín og þannig var staðan í hálfleik.  Á 60. mín. kom hann Ægismönnum yfir en Arnar Þórarinsson jafnaði fyrir Berserki á 69. mín.  Það var síðan Ingi Rafn sem skoraði sigurmarkið fyrir okkar menn á 81. mín. og fyrsti sigur liðsins staðreynd og var hann ansi mikilvægur.

Næsti leikur liðsins er heimaleikur mánudaginn 11. júní gegn Létti.