Sameiginlegt lið Ægis/Hamars í 6. flokk tók í dag þátt í Vís-móti Þróttar sem haldið er í Laugardal. Við mættum með þrjú lið til leiks í A, B og C liða keppni. Strákarnir stóðu sig allir með prýði og fengu í lok móst bol, buff og glæsilegan verðlaunapening. Veðrið lék við mótsgesti og fóru allir sælir og sólbrúnir heim.
6. flokkur á Vís-móti Þróttar
27. maí 2012
| umsjon