Grátlegt jafntefli hjá meistaraflokki gegn Sindra

26. maí 2012

| umsjon

Grátlegt jafntefli hjá meistaraflokki gegn Sindra

Meistaraflokkur karla tók í dag á móti Sindra frá Hornafirði.  Aðstæður voru bærilegar, völlurinn fínn, skýjað og sunnan vindur.  Eitthvað virðist vindurinn hafa haft áhrif því Sindramenn voru sterkari aðilinn allan fyrri hálfleik.  Okkar menn áttu þó að fá vítaspyrnu undir lok hálfleiksins  þegar Milan var komin framhjá bakverði gestanna og tekin niður en fékk  gult spjald fyrir leikaraskap.

Í síðari hálfleik voru Ægismenn sterkari aðilinn.  Ekki náðu strákarnir þó að skapa sér teljandi færi framan af.  Á 69. mín. átti Þorkell góðan bolta inn í teyg og Ingi Rafn afgreiddi hann glæsilega í netið.  Eftir þetta skiptust liðin á að sækja og fengu okkar menn ansi gott færi til að klára leikinn þegar þeir komust þrír á móti einum en náðu ekki að nýta gott færi.  Sigurinn virtist í höfn og komnar 4 mín. fram yfir venjulegan leiktíma þegar Sindramenn náður að jafnaleikinn eftir mikið klafs og að því er virtist rangstöðu.

Niðurstaðan var því ansi svekkjandi jafntefli.  Okkar menn hefðu sannarlega átt meira skilið en það er ekki alltaf spurt að því í fótbolta.

Næsti leikur liðsins er föstudaginn 1. júní gegn Berserkjum á útivelli.