Við höldum áfram að kynna nýja leikmenn meistaraflokks. Næstur í röðinni er nýji markmaðurinn okkar……….við spurðum hann spjörunum úr.
Hvað heitir kappinn og hvað er hann gamall?
Magnús Karl Pétursson og er 32. ára.
Hvaðan ertu?
Garðabæ.
Með hvaða liðum hefur þú spilað?
Stjörnuni, Selfoss, Fylki og ÍR.
Hvernig líst þér á nýja félagið og sumarið?
Mér líst mjög vel á nýja félagið og aðstæður hérna eru eins og þær gerast bestar hjá 3. deildar klúbb (ekki síðri en hjá 1. deildar og úrvalsdeildarliðum). Sumarið legst vel í mig og ég held að það megi alveg stefna á að fara uppí 2. deild.
Hvert er uppáhalds liðið þitt í ensku og hver er uppáhalds leikmaðurinn?
Man Utd. og það er enþá Eric Cantona.
Við þökkum Magnúsi kærlega fyrir góð svör.