Góð byrjun hjá 3. flokk karla

21. maí 2012

| umsjon

Góð byrjun hjá 3. flokk karla

Sameiginlegt lið Selfoss/Ægis í 3. flokk karla lék sinn fyrsta leik á Íslandsmótinu þetta sumarið á laugardag.  Sindri frá Hornafirði kom í heimsókn og var leikið á Selfossvelli.
Það er skemmst frá að segja að okkar menn unnu stórsigur 9:0.  Vonandi verður áframhald á þessu í sumar hjá strákunum.