Við munum á næstu vikum kynna til leiks nýja leikmenn meistaraflokks Ægis sem komið hafa fyrir þetta tímabil. Við byrjum á miðverði að vestann.
Hvað heitir kappinn og hvað er hann gamall?
Ég heiti Hafþór Atli Agnarsson og er 22. ára.
Hvaðan ertu?
Ég er fæddur og uppalinn Ísfirðingur.
Með hvaða liðum hefur þú spilað?
BÍ/Bolungarvík alla tíð þar til nú.
Hvernig líst þér á komandi sumar og nýja félagið?
Mér líst mjög vel á sumarið, ættum að geta gert góða hluti. Finnst gaman að prófa eitthvað öðruvísi, líst vel á klúbbinn, aðstæður og að ég tali nú ekki um strákana í liðinu.
Hvað er uppáhalds liðið í ensku og hver er uppáhalds leikmaðurinn?
Það er Liverpool og að sjálfsögðu Jamie Carragher.
Við þökkum Hafþóri kærlega fyrir spjallið.