Í haust var ákveðið að fara í þá vinnu að láta hanna nýjan keppnisbúning fyrir Knattspyrnufélagið Ægir. Skipuð var nefnd sem hélt utan um þetta og kom með sínar óskir varðandi búninginn sem var síðan hannaður með aðstoð aðila hjá Henson.
Ákveðið hefur verið að iðkendur kaupi sinn búning sem viðkomandi getur síðan látið merkja með nafni. Þeir aðilar sem auglýsa á búningnum eru: Trésmiðja Heimis, Rammi hf., Landsbankinn í Þorlákshöfn, Hrímgrund og Járnkarlinn. Með góðum stuðningi þessara aðila og hlut af pappírssölu getum við greitt niður fyrsta búning hjá hverjum iðkanda.
Verð á búningnum (treyja, stuttbuxur og sokkar) til iðkenda er 6.500 kr. með merkingum.
Verð á búningnum til annarra er 9.500 kr. með merkingum.
Einnig geta aðrir keypt staka treyju og er verðið á henni 6.000 kr.
Búningar greiðast við afhendingu (ekki á pöntunardegi).
Við ætlum að vera í Íþróttamiðstöðinni mánudaginn 7. maí og þriðjudaginn 8. maí milli kl. 17:00 – 19:00 með búninga svo hægt verði að máta og panta fyrir komandi keppnistímabil.
Bestu kveðjur,
Stjórn og búninganefnd Ægis