Meistaraflokkur karla spilaði sinn fyrsta leik í Lengjubikarnum þetta tímabilið í dag. Mótherjinn var KFG og var leikið á Stjörnuvelli.
Okkar menn töpuðu leiknum 5:2 eftir að hafa komist yfir 0:1. KFG skoruðu næstu 3 mörk áður en Milan skoraði sitt annað mark og minnkaði muninn. Í stöðunni 3:2 voru Ægismenn líflegir og gerðu sig líklega til að komast inn í leikinn en heimamenn skoruðu síðustu mörkin í leiknum og niðurstaðan 5:2 tap.
Næsti leikur meistaraflokks er næstkomandi laugardag (24. mars) gegn Víði og fer hann fram á Selfossvelli. Leikurinn hefst kl. 16:00.