Fjöldi leikja hjá Ægi um helgina

5. mar 2012

| umsjon

Fjöldi leikja hjá Ægi um helgina

Það var fjöldi leikja um helgina hjá yngri flokkum Ægis.  5. flokkur karla lék sína fyrstu leiku á faxaflóamótinu í samvinnu við Hamar, liðin telfdu fram A og B liðum.  Mótherjinn var Grótta og fóru leikirnir fram á Gróttuvelli.  4. flokkur karla A,B og C lið léku gegn ÍA á laugardaginn og síðan spiluðu A og B lið 3. flokks karla gegn ÍBV á sunnudag.  Leik 4. flokk kvenna sem vera átti á laugardag var frestað.  Eins og sjá má var nóg að gera á knattspyrnuvöllunum þessa helgina.